17.3.2009 | 10:48
Hið besta mál.
Bubbi hótar að hætta útgáfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2009 | 14:15
Loksins
Ögmundur verður ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2008 | 21:13
Tvær ofvirkar - vont veður - sund
Jæja ég hef verið alveg merkilega löt að skrifa blokk. Enda finnst mér ég ekkert hafa að segja. Les bara meira hvað hinir hafa að segja.Og hef gaman af.
En ein vinkona mín er að segja mér að ég skrifi ekki einu sinni um sundtímana okkar. En þannig er að við erum tvær sem höfum verið mjög latar að fara í sund. En við drifum okkur, og þá tóku þeir upp á því í sundlauginni á Hvolsvelli og lokuðu henni. En við létum það nú ekkert á okkur fá og fórum bara út á Hellu. Í dag 17. sept. fóru við líka þó veður væri nú kannski ekki það allra besta til að fara í sund. Enda var vatnið mjög kalt, svona til að byrja með. Þetta tekur nú aðeins lengri tíma á Hellu en á Hvolsvelli. Kvöldmatur er orðin af "miðnæturdinni". En hvað gerum við ekki fyrir heilsuna.
Annars er allt gott að frétta úr Hvolsvelli, Magnús Þór farin í skólann (Hvanneyri) er byrjaður að vinna að B.s. verkefni sínu sem hann á að skila 1. maí. Hjördís vinkona hans er líka í skólanum og hún er líka byrjuð að vinna að sínu verkefni. Þau stefna bæði að því að útskrifast í maí á næsta ári. Duglegir krakkar. Svo eru Sigrún Linda og Inga Vala líka byrjaðar í skólanum, en þær eru á öðru ári. Sigrún Linda (systurdóttir mín) er í búvísinum og Inga Vala, vinkona Steingríms Þórs (sonur minn) er á náttúru- og umhverfissviði. Síðan er Ásta Sóllilja (systurdóttir mín) byrjuð á Hólum, á ferðamálabraut.
Búið er að fara á fjall, með Fljótshlíðingum. En um næstu helgi fara allir á Emstrurnar til að smala. Steingrímur Þór stundar allar réttir sem hann heyrir að eru. Þeysist á milli Rangárvallasýslu og Borgarfjarðarsýslu.
Jæja nú verður það ekki meira að sinni. Vona að allir hafi það gott með von um að vonda veðrið hafi nú ekki eyðilagt mikið hjá ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2008 | 10:50
Leti og aftur leti.
Ég skil ekki hvað ég er löt að blogga. Ætli ég hafi bara frá nokkru að segja?
Landsmót hestamanna er hér á Hellu eins og allir vita. Fjöldi fólks mætt á svæðið. Vonandi hættir Kári að blása á aumingja fólkið og fari nú að róast.
Er að fara í sumarfrí 7. júlí og ætla að vera í 3 vikur. Það stóð til að fara til Húsavíkur, en trúlega verður ekkert úr því. Bensínverð er svo hátt að það er ekki hægt að ferðast um landið á bíl.
30. mai s.l. útskrifaðist Steingrímur Þór sonur minn frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Hann er búin að vera á Hvanneyri í 5 ár. Eftir stúdentspróf frá FSU tók hann búfræðinginn á Hvanneyri og fór síðan í búvísindi. Núna er hann sem sagt útskrifaður með B.s. í búvísindum. Athöfnin fór fram í Reykholti og síðan var farið í kaffi á Hvanneyri. Þetta var alveg yndislegur dagur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.5.2008 | 14:17
Sumarfrí
Er að fara til Húsavíkur.
Brúðkaup í Vallakirkju í Svarfaðardal á sunnudaginn 25. mai. Ingunn Elfa og Gísli Davíð ætla að gifta sig þar. Ingunn Elfa er dóttir Ingibjargar systur. 25. mai er mikill dagur í okkar ætt. Mamma verður 75 ára, síðan eru 61 ár síðan mamma var fermd. Nú svo eru 55 ár síðan ég var skírð. 40 ár síðan Ingibjörg systir og Beggi giftu sig. 40 ár síðan Ásta Birna dóttir þeirra var skírð. 13 ár síðan Ásta Sóllilja dóttir Guðrúnar Auðar var fermd.
Ætla að vera á Húsavík í 5 daga. Vonandi verður gott veður eins og spáð er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2008 | 00:01
2 x 80 ára og 2 x 4 ára, 5 mai 2008.
Í dag 5. mai er pabbi minn 80 ára. Pabbi minn er tvíburi þannig að Rögnvaldur er líka 80 ára í dag. Innilega til hamingju með daginn báðir tveir. Það eru líka aðrir tvíburar í ættinni, fæddir á þessum degi. Langafabörn pabba mín, þau Ingibjörg og Þorlákur, eru 4 ára í dag. Til hamingju Ingibjörg og Þorlákur. Þau eru barnabörn Ingibjargar Sigríðar systur minnar. Þannig að þið sjáið að þetta er merkisdagur í okkar fjölskyldu. Það eru ekki allir tvíburar upptaldir í fjölskyldunni. Ingibjörg Líney hálfsystir mín á líka tvíbura, tvo stráka. Ingibjörg Sigríður og Ingibjörg Líney eru báðar Steingrimsdætur. Þær eru elsta og yngsta barn pabba okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.5.2008 | 20:41
Samband sunnlenskra kvenna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2008 | 10:30
Landið fýkur burt..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2008 | 14:48
Ísland í dag.
Ég hef verið voða löt að skrifa blogg. Þeim mun duglegri að lesa frá öðrum. En núna sit ég hér í vinnunni og skil ekkert í þeim sem ræður veðrinu. Ég fór heim í hádeginu og þá kom hellirigning, og síðan haglél. Núna snjóar svo "fallega". Hef ég verið löt að rífa af dagatalinu og kannski misst af sumrinu?? Ég sem ætlaði að gera svo margt skemmtilegt í sumar. Fara heim. Heim er til Húsavíkur. Fara í brúðkaup í Eyjafjörðinn. Og allt hitt........ Annars fer þetta nú allt eftir því hvað þessi blessaða ríkistjórn ætlar að gera...verður hægt að ferðast á bíl um Ísland??
Jæja best að vinna aðeins meira, það er nú ekki komið kaffi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.2.2008 | 21:38
Er dreifbýlið þriðja flokks??
Íslandspóstur fær heimild til að fækka dreifingardögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar